JAKINN.IS
Ávallt ískaldur!
Lattelepjandi Listamannaaumingjahyski
17.Febrúar 2012

Já Gamli maðurinn kann að nefna þetta lattelepjandi aumingjapakk sem ekki nennir að vinna !!!!
Hér er þetta skemmtilega myndband ;-)
„Lifið lífinu lifandi“ Og ekki æsa ykkur !!!
Villhjálmur Viljálmsson
12.Febrúar 2012

Vilhjálmur Vilhjálmsson fæddist þann 11. apríl 1945 í Merkinesi í Höfnum á Suðurnesjunum og ólst þar upp, yngstur í hópi fimm systkina. Á uppvaxtarárum sínum var Vilhjálmur allajafna kallaður Hólmar. Faðir hans var Vilhjálmur Hinrik Ívarsson, var þekktur harmonikuleikari og söngmaður.
Um mitt ár 1970 fluttist Vilhjámur til Lúxemborgar eftir að hafa lokið flugnámi. Vilhjálmur lést í umferðarslysi í Lúxemborg þann 28. mars 1978, þar sem hann var við störf á vegum Arnarflugs.
Árið 1967 er Villi Vill að singja tilveruna eins og þeir sjá hana fyrir sér árið 2012.
Segja t.d...... Forsætisráðherrann var gamall IBM
Já það er gaman að skoða það hér á YouTube
„Lifið lífinu lifandi“ Það er svo gaman með Villa Vill !!!!
Við styðjum Ólaf Ragnar Grímsson HEILSHUGAR !!!!
5.Febrúar 2012

Hann Ólafur Ragnar Grímsson er maður sem þorir og það er einmitt svoleiðis maður sem þarf að vera í stólnum á Bessastöðum.
Það eru umbrotatímar með átökum um stjórnarskrána og hlutverk forsetaembættissins. Við þurfum að hafa sterkan mann í forsetaembættinu !! Mann sem þorir á þessum síðustu og verstu tímun.
Ólafur hefur staðið sig mjög vel ja allavega frá því að ástandið breittist í þjóðfélaginu. Við meigum ekki dæma hann of hart þó hann hafi látið glepjast þegar allsstaðar var allt í BLÓMA, við eigum að muna að við gerðum það sjálf allavega flest okkar í eihveju mæli.
Svo meigum við ekki gleyma því að Ólafur Ragnar hann hefur hagsmuni ÍSLANDS að leiðarljósi það hafur hann margsannað og sýnt.
Hér er linkur þar sem fólk getur stutt Ólaf Ragnar og hvatt hann til að bjóða sig fram einu sinni enn. Þó hann sé búinn að sitja of lengi í rauninni þá er bara verið að vega svo að Forsetaembættinu um þessar mundir og þá þurfum við mann með kjark, mann sem þorir og ég held að nýjir frambjóðendur myndu ekki þora eins og hann. Svo er hann svo vel að sér í ÖLLUM lögum um um sjtórnarfarið allt saman sem er mjög, mjög stór plús.
Hér er líka linkur á ýmis hvatningar orðin.
Því segi ég KJÓSUM Ólaf Ragnar Grímsson að Bessastöðum eitt tímabil enn það verður betra þegar upp er staðið.
„Lifið lífinu lifandi“ Og lifum því með Ólafi Ragnari og Dorrit Moussaieff !!
Hinn mikli Jón Páll Sigmarsson
30.Janúar 2012

Nú eru nítján ár í dag síðan að þessi mikli og jafnframt ljúfi drengur Jón Páll Sigmarsson lést. Þetta var mikilmenni sem enn þann dag í dag er sárt saknað.
Blessuð sé minning hans !!!
„Lifið lífinu lifandi“ Eins og Jón Páll !!!
Ferðafrelsi ÍSLENDINGA !!!!
24.Janúar 2012

Góðan daginn,
Þeir hjá Ferðaklúbb 4x4 Eyjafirði héldu fund föstudaginn 20. Janúar kl 20:00. í Kaupangi v/Mýrarveg á Akureyri.
Í tilefni þess tók N4 Sjónvarp Norðurlands viðtal við Elías Þorsteinsson formann Ferðafrelsisnefndar Eyjafjarðar Ferðaklúbs 4x4 og Björn Pálsson Öræfabílstjóra um ýmislegt sem brennur á hvað varðar Ferðafrelsi Íslendinga.
En það á í vök að verjast þ.e.a.s flelsi okkar ÍSLENDINGA til að ferðast á skynsaman hátt eins og 99,9% allra Íslendinga hefur gert alla tíð.
Við ferðamenn viljum við vera stolt af því að stofnaðir séu þjóðgarðar á Íslandi, en það sem segir í 2. grein Laga um Vatnajökulsþjóðgarð...... Markmiðið með stofnun Vatnajökulsþjóðgarðsins er að vernda landslag, lífríki, jarðmyndanir og menningarminjar svæðisins og gefa almenningi kost á að kynnast og njóta náttúru þess og sögu. Auðvelda skal almenningi aðgengi að þjóðgarðinum eftir því sem unnt er án þess að náttúra hans spillist og veita fræðslu um náttúru, sögu og mannlíf svæðisins.
En raunin er önnur og er sú staðreynd að verða æ sterkari að það eru fáir ef nokkur sem segir með stolti frá Þjóðgörunum.
Ráðherra og Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs eru að búa þannig um hnútana að hvergi ríkir sátt. Það er valtað yfir menn og málefni, vaðið yfir fólk á skítugum skónum, lítil samráð höfð allt í skjóli Náttúruverndar.
Hér er linkurinn á fréttina ég náði ekki að setja hana inn, ég er svo mikill Tölvunörd ;-)
http://www.n4.is/tube/file/view/2254/
„Lifið lífinu lifandi“ Einnig í góðri sátt um Þjóðgarða !!
Þvílíkur styrkur
10.Janúar 2012

Þvílíkur styrkur svo ekki sé talað um limaburð endilega kíkið á myndbandið...
„Lifið lífinu lifandi“ Og í góðri þjálfun það er betra !!
Naflaskoðun Stefáns J Hafsteins
9.Janúar 2012

Í Silfri Egils ræðir Egill við Stefán um Ísland og hvernig hann sér það úr fjarska, og hversu sláandi Ísland sé líkt mörgun ættbálkum sem eru að rífa sig úr SPILLINGARFYLLERÍI.
Endilega horfið á það er mjög athyglivert... Þið verðið að klikka á tengilinn, ég get ekki sett videoið inn núna :-(
http://www.youtube.com/embed/x2sgztF_YL4
„Lifið lífinu lifandi“ Með von í huga !!
Hver stelur Toyotu !!!
27.Desember 2011

Aldrei myndi ég leggjast svo lágt að stela Toyotu, jafnvel þó hún sé frá Ómari.
En henni var stolið sjá hér
„Lifið lífinu lifandi“ En ekki stelandi !!!


