Skip to: Site menu | Main content

 

Algjör hneisa!!!!!!!!!!!!!
1.Júlí 2010

Yfirmaður áhættustýringar Kaupþings tapaði 2 milljörðum (mest fengið að láni) og allar skuldir hreinsaðar við hann og mörg hundruð aðra bankastarfsmenn sem fengu lán frá 10-1000 milljónum til að kaupa hlutabréf, sumir fengu sér Cruiser 100 jeppa, fjármögnuðu heimsreisur og lúxus heimili. Allar skuldir hreinsaðar upp svo þeir geti hafið störf í nýju ríkisbönkunum okkar. Rökin sem FME og ráðamenn færa fyrir þessu er að það sé ómögulegt að manna yfirmannastöður í nýju bönkunum nema þetta sé gert, því lögum samkvæmt mega gjaldþrota einstaklingar ekki starfa fyrir banka!!! Fyrir mér er þetta stríðsyfirlýsing við okkur venjulegu borgarana í þessu landi sem erum flest með lán í þessum bönkum. Ef skuldir og sukk þessara óreiðumanna eru sópaðar útaf borðinu þá vil ég að það sama gangi yfir alla!!!!!! Tugþúsundir töpuðu stórum hluta af sparnaði sínum, tugþúsundir venjulegra hluthafa í bönkunum töpuðu öllu sínu.... ég gæti haldið endalaust áfram... ég hef aldrei reiðst eins mikið á ævi minni og þegar ég heyrði þetta.

Þetta er hámark spilingarinnar og hvet ég ykkur til að hafa samband við sem flesta og beina reiði ykkar að þingmönnum okkar. Þetta endar með ofbeldi annars.

„Lifið lífinu lifandi“  Ekki með OFBELDI!!!

Eldri fréttir
 
2008 © Hjörtur Sævar Steinason | Keyrt á Oliver vefumsjón