Skip to: Site menu | Main content

 

Leitin að Drullusokknum
6.Apríl 2009

Fórum í sumarbústað að Flúðum núna um dagana, nánar tekið við Heiðarbyggð. Veðrið var svo gott alla helgina að það var algjör unun að vera úti við hvort sem var í heita pottinum eða bara vera úti, það var reyndar svolítið kalt en stillan var algjör og þegar maður er búinn að klæða sig vel þá er það ekkert mál. Nú ég tók líka með mér flugustöng nýjan fjarka frá Tomas and Tomas til að æfa mig með. Því fluguveiðin er þannig að maður er alldrey fullnuma endalaust hægt að bæta við þar, einnnig að þó að maður sé búinn að öðlast ákveðna færni með eitthvað þá er nauðsynlegt að skerpa á þeirri færni. Því oftar sem það er gert bara betra. Nú ég verð að fara fleiri orðum og veðrið dýrðina!! Það er svo gaman og yndislegt að vera úti í svona góðu veðri t.d á föstudagskvöldið var svo heiðskírt að manni verkjaði, Tunglið stutt í fyllingu, Venus, Karlsvagnin og Norðurstjarnan voru þarna í allri sinni dýrð ásamt öllum hinum stjörnunm. Svo um hálf tíu á laugardagsmorgninum þá var maður aftur kominn í pottinn, var stillan enn og dagsbirtan ekki orðin öll, fegurðin frábær, fjallasýnin og eitt og eitt ljós frá bæum eða sumarbústöðum þvílík unun.

Nema svo fannst Láru seitla eithvað rólega úr sturtunni svo við Olli vorum sendi út á örkina í leit að Drullusokk. Ekkert mál sögðum við, á Flúðum væri örugglega nóg af Drullusokkum og brunuðum við af stað, nú undrunin var töluverð er við komum að Flúðum þar var enginn Drullusokkurinn. Nú þá var brunað á Selfoss þar hlytu að vera nóg af Drullusokkum sem kom á daginn þar var nóg til af þeim ;-) Fengum við einnig tvær hespur af mórauðum lopa fyrir Guggu svo að hún gæti prjónað á mig ermahlífar, þá er dautt það vandamál að manni sé kalt sökum þess að það sé bert á milli peisu og vettlings. Var síðan haldið í bústaðinn á ný fengið sé te sopa og svo var farið í fluguköstin enn í sömu dýrðarinnar veðursældinni. Svo um kvöldmatarleitið var farið að huga að matseld sem átti að vera töluvert grand, Humar í forrétt og Hreindýr í aðalrétt og svo var einnig Skyrterta í eftirrétt og svo Mohito á eftir. Reyndum að ryfja upp hvenær við eignuðumst humarinn við Lára en tókst ekki enda var komið aðeins bragð í hann ekki vont reyndar en ekki rétta bragðið. Svo þegar Hreindýrið var dregið fram reyndist það vera lifur, sem sagt Hreindýralifur. Nú voru góð ráð dýr(Hreindýr) farið var í það að hringja í vin og einnig skoðað það sem til var í ískápnum og að endanum var lifrinni vellt upp úr hveiti, salt og pipar og svo skellt smá á sjóðheita pönnu kjötinu rétt lokað svo gerð sósa með miklum lauk og lifrin svo sett í sósuna, nú Hreindýralifrin bragðaðist nú aveg ágætlega bara nokkuð góð. Svo kom Spaugstofan og svo farið í heita pottinn aftur, en nú voru kominn ský á loft og smá vindur en gott veður samt. Svo á sunnudeginum var byrjað á pottinum og svo fluguköst, síðan voru mátaðar þessar fínu ermahlífar sem Gugga var búinn að prjóna. Svo í pottinn áður en brunað var í bæinn.

Eldri fréttir
 
2008 © Hjörtur Sævar Steinason | Keyrt á Oliver vefumsjón