Skip to: Site menu | Main content

 

  • Fréttir
  • Okkur ber ekki að BORGA !!!!!!!!!!!!

Okkur ber ekki að BORGA !!!!!!!!!!!!
14.Febrúar 2011

Góðan daginn,
staðreynd málsins er sú að sá Icesave samningur sem nú liggur fyrir Alþingi er mun betri en sá fyrri. Vissulega er það rétt að skilmálar samningsins virðast ekki alveg jafn íþyngjandi, en það er hinsvegar óviðeigandi að reyna að leggja kostnaðarmat á réttlætið. Innheimtukrafa Breta og Hollendinga á hendur íslenskum skattgreiðendum er nefnilega ennþá jafn löglaus, og samningur á grundvelli slíkrar kröfu þar af leiðandi alveg jafn ólöglegur og sá fyrri.

Í gildandi lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta er í 2. gr kveðið á um stofnun tryggingarsjóðs þannig að: "Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun" (ekki ríkisstofnun). Í 3. gr. er enn fremur skilgreint að aðildarfyrirtæki hans skuli vera "Viðskiptabankar, sparisjóðir, fyrirtæki í verðbréfaþjónustu" o.s.frv. Í öðrum greinum laganna er svo skilgreint hvernig starfsemi sjóðsins skuli vera fjármögnuð af aðildarfyrirtækjunum sjálfum.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings 2007 stendur á bls. 9 og er áréttað aftur á bls. 57 að fella skuli sjálfseignarstofnunina Tryggingarsjóð Innstæðueigenda úr D-hluta ríkissjóðs, þar sem "Sjóðurinn getur með engu móti talist eign ríkisins og það ber heldur ekki ábyrgð á skuldbindingum hans."

Í 3.gr. þágildandi evróputilskipunar 94/19/EB um innstæðutryggingar er enn fremur beinlínis lagt bann við því að tryggingakerfið feli í sér ríkisábyrgð.

Ef við viljum fara að lögum og reglum verður að hafna þessum samningi. Okkur myndi ekki detta í hug að brjóta t.d. umferðarlög þótt um það væri gerður "betri samningur".

Svo má deila um hvort Íslandi beri einhver siðferðisleg skylda til að bæta innstæðueigendum tjónið. Mér finnst að eigi einmitt að gera það, t.d. með því að aðstoða þá við að hámarka endurheimtur sínar úr þrotabúi gamla Landsbankans.

Almennt er samt ekki siðferðislega réttlætanlegt að brjóta lög.

Hér er linkur á undirskriftalista þar sem skorað er á Alþingi að hafna Icesave.


Því segi ég ..........Kæru Íslendingar það er öllu hægt að breyta !!!!!
BARA AÐ SÝNA SAMSTÖÐU !!!!!!!!!!!!!!

Einnig sterkur leikur að senda forseta vorum póst á netfangið   forseti@forseti.is þar sem honum er gerð ljós staða okkar með þetta mál.   Hér er tillaga að bréfi til forseta ...........


Kæri forseti vor, þér tilkynnist hér með að ég er algjörlega á móti því að við borgum ICESAVE reikninga Landsbankans.
Vil ég eindregið að þú gerir allt sem í þínu valdi stendur til að við Íslendingar þurfum ekki að borga það sem okkur ekki ber !!!
Þó ekki væri annað en að setja málið til þjóðarinnar !!!
Virðingarfyllst Hjörtur Sævar Steinason.


„Lifið lífinu lifandi“ Á ÍSLANDI ÁN ICESAVE !!!!!!!!!!!!

Eldri fréttir
 
2008 © Hjörtur Sævar Steinason | Keyrt á Oliver vefumsjón